Sautján í nálgunarbann

Sautján einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í nálgunarbann síðustu tvö árin, tíu í fyrra og sjö árið 2010. Þetta er mikil breyting frá fyrri árum því árin 2006 til 2009 voru aðeins kveðnir upp tveir úrskurðir um nálgunarbann.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Þar er haft eftir Jóni H. B. Snorrasyni, aðstoðarlögreglustjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að oft sé fólk sett í nálgunarbann vegna erfiðra samskipta fólks eftir skilnað eða sambúðarslit. Nálgunarbann hafi smátt og smátt sannað sig sem úrræði og sé nú talið lausn í málum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku