Samgöngutruflanir um alla Evrópu

Miklar samgöngutruflanir eru í Evrópu vegna snjókomu og kuldans sem þar ríkir.
Á Heathrow-flugvelli í Lundúnum hefur næstum þriðja hver brottför verið felld niður á morgun þar sem gert er ráð fyrir djúpum snjó, kulda og þoku. Á Schiphol-flugvelli í Amsterdam voru miklar seinkanir í dag og margar ferðir felldar niður. Margir minni flugvellir á meginlandinu eru lokaðir. Járnbrautaumferð gengur einnig treglega sem og umferð á vegum vegna snjóa. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bosníu og stórum hluta Serbíu. Í Róm á Ítalíu var mesta snjókoma í næstu 30 ár í dag. Sums staðar var allt að 60 sentimetra jafnfallinn snjór. Kuldinn nær einnig til Norður Afríku. Snjókoma var í Algeirsborg í dag og þar var spáð allt að 5 stiga frosti í nótt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







