Sambahátíð fyrir listina
Fyrst birt: 05.07.2012 13:50, Síðast uppfært: 05.07.2012 13:50
Flokkar: Samfélagið í nærmynd

Í Selárdal, listaverk Samúels Jónssonar - ljósm. Arnar S. Jónsson
Laugardaginn 7. júlí stendur Félag um listasafn Samúels í Selárdal fyrir Sambahátíð að Brautarholti í Selárdal við Arnarfjörð.
Sambahátíð er samkoma fyrir alla fjölskylduna til styrkta endurreisn á listaverkum og byggingum Samúels Jónssonar í Selárdal. Boðið verður upp á tónlist, leiklist, sagnamenn og gönguferðir með leiðsögn. Ólafur J. Engilbertsson, sem er í stjórn Félags um listasafn Samúels í Selárdal, var gestur Samfélagsins í nærmynd.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is










