Sambía og Fílabeinsströndin áfram

Didier Drogba skoraði tvö mörk fyrir Fílabeinsströndina í gær

Sambía og Fílabeinsströndin komust í undanúrslitin í Afríkukeppninni í knattspyrnu eftir sigur á andstæðingum sínum í átta liða úrslitum í gær.

Didier Drogba, leikmaður Chelsea, skoraði tvö marka Fílabeinsstrandarinnar í 3-0 sigri liðsins á Miðbaugs-Gíneu og Sambía vann Súdan 3-0 sömuleiðis.

Í dag ræðst hvaða tvö lið fylgja Fílabeinsströndinni og Súdan í undanúrslit en þá mætast Ghana og Túnis annars vegar og Gabon og Malí hins vegar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku