Russell Crowe kominn til landsins
Fyrst birt: 16.07.2012 22:43, Síðast uppfært: 17.07.2012 05:59

Ástralski stórleikarinn Russell Crowe er kominn til landsins. Hann lenti á tíunda tímanum í kvöld á Reykjavíkurflugvelli og hafði fjölskylduna sína með sér og gítar.
Þetta kemur fram á vefsíðunni visir.is. Þar kemur einnig fram að Crowe hafi gefið sig á tal við nokkra flugvallarstarfsmenn og að létt hafi verið yfir leikaranum sem nýtti tækifæri og tilkynnti fylgjendum sínum á twitter hvar hann væri í heiminum. Crowe leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Noah eftir Darren Aronofsky sem tilkynnti í dag á twitter að hann væri á leiðinni til Íslands. Meðal annarra leikara sem eru einnig væntanlegir til landsins má nefna Emmu Watson og Anthony Hopkins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













