Romney vann í Nevada

Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massaschusetts, sigraði í forkosningum repúblíkana í Nevada um hver verði frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum í haust.
Haldnir voru svo kallaðir kjörfundir. Talningu er ekki lokið en þó ljóst að Romney sigraði örugglega. Hann er með rúm 42% prósent atkvæða en helsti keppinauturinn Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, um 26%. Þingmaðurinn Ron Paul er með rúm 18% og Rick Santorum, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður rekur lestina með 13%. Romney er mormóni og þeir eru fjölmennir í Nevada. Um fjórðungur þeirra sem greiddu atkvæði í forkosningum repúblíkana í Nevada fyrir fjórum árum voru mormónar. Gingrich hefur þegar lýst yfir að hann ætli að halda kosningabaráttunni áfram þrátt fyrir ósigurinn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







