Robin Gibb er alvarlega veikur

Robin Gibb.


  • Prenta
  • Senda frétt

Breski tónlistarmaðurinn Robin Gibb, einn Bee Gees-bræðranna, liggur í dauðadái á sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að hafa veikst alvarlega af lungnabólgu.

Hann var fjarverandi þegar sígilt tónverk eftir hann var frumflutt í vikunni, það fyrsta sem hann hefur samið. Síðan þá virðist honum hafa elnað sóttin. Gibb hefur undanfarið glímt við krabbamein en var talinn á batavegi.

Bee Gees er ein vinsælasta hljómsveit sögunnar. Frægðarsól hennar reis hæst á áttunda áratugnum, einkum vegna nokkurra laga sem bræðurnir voru fengnir til að semja og flytja í kvikmyndinni Saturday Night Fever. Robin Gibb, sem er 62 ára, stofnaði Bee Gees ásamt tvíburabróður sínum Maurice, og Barry, eldri bróður þeirra. Maurice andaðist fyrir þremur árum.

Tónverkið sem Robin Gibb samdi ásamt syni sínum er sálumessa til minningar um Títanic-slysið fyrir réttum hundrað árum. Verkið var frumflutt í Lundúnum á miðvikudaginn var. Til stóð að Robin Gibb syngi eitt lag verksins, en af því gat ekki orðið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku