Réðust á lögreglustöð í Nígeríu

Frá Kano í Nígeríu fyrir nokkrum dögum þegar hryðjuverkamenn stóðu að sprengjutilræðum við lögreglustöðvar. Mynd: Nordic Photos/AFP

Hópur þungvopnaðra manna réðist á lögreglustöð í borginni Kano í norð-austur hluta Nígeríu í kvöld. Sjónarvottar segjast hafa heyrt miklar sprengingar og skothvelli í allt kvöld en ekki er ljóst hversu margir hafa fallið.

Um svipað leyti bárust fregnir af skothríð á útimarkaði í borginni Maiduguri í sama landshluta. Talið er að liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Boko Haram hafi verið að verki en þeir hafa staðið fyrir fjölda mannskæðra árása síðustu vikur. Í síðasta mánuðu létu meira en 150 lífið í sprengjuárásum þeirra á kirkjur og aðra samkomustaði kristinna manna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Afríka, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku