Tekst á við krabbamein af æðruleysi



  • Prenta
  • Senda frétt

Thelma Dís Hilmarsdóttir er tólf ára dugnaðarforkur sem greindist með krabbamein í vor og í síðustu viku þurfti að taka af henni annan fótinn fyrir neðan hné. Helga Melsteð, vinkona fjölskyldunnar, hjólar nú hringinn í kringum landið til styrktar Thelmu og fjölskyldu hennar.

Thelma Dís tekur veikindum sínum af miklu æðruleysi og er þakklát fyrir að krabbameinið hafi verið staðbundið í fæti og hægt sé að koma í veg fyrir að það dreifist um líkamann. Frá því að veikindin komu í ljós í vor hefur hún verið í stífri lyfjameðferð og verður henni haldið áfram strax í næstu viku. Ef allt gengur að óskum mun Thelma fá gervifót eftir sex vikur.

Thelma Dís er lífsglöð og veit hvað hún vill. Hún hefur mikinn áhuga á teiknibókum sem heita Top model og ætlar sér að verða fatahönnuður þegar fram líða stundir. Þeir sem vilja leggja Thelmu Dís og fjölskyldu hennar lið í veikindunum geta lagt inn á reikning hjá Sparisjóðnum í Hornafirði sem Helga Melsteð opnaði fyrir ferð sína hringinn í kringum landið en hún hjólar til stuðnings fjölskyldunni. Númer reikningsins er 1147-05-401414 og
kennitalan 270100-2280.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku