Ólafur með yfir helming fylgis

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur yfir helmings fylgis samkvæmt fylgiskönnunum bæði Gallups og Fréttablaðsins. Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir RÚV fær Ólafur 50,8% fylgi, en 57% kjósenda ætla að kjósa Ólaf samkvæmt könnun Fréttablaðsins.
Þóra Arnórsdóttir fær 33,6 % samkvæmt Gallup, en 30,8% samkvæmt Fréttablaðinu. Í Gallup könnuninni fær Ari Trausti Guðmundsson 9,3%, Herdís Þorgeirsdóttir 3,4%, Andrea J. Ólafsdóttir 2,5% og Hannes Bjarnason 0,8%. Samkvæmt fylgiskönnun Fréttablaðsins fær Ari Trausti 7,5% , 2,6% ætla að kjósa Herdísi, 1,7% Andreu og 0,3% Hannes.
10% aðspurðra tóku ekki afstöðu eða eru óákveðin og 5% ætla að skila auðu eða sitja heima samkvæmt Gallupkönnuninni, en tæpur fjórðungur aðspurðra hafði ekki tekið afstöðu samkvæmt Fréttablaðskönnuninni.
Gallup lauk við sína könnun í gær, en hafði frá því á sunnudag spurt 2000 manns um forsetakosningarnar. Svarhlutfall var 60,7%
Fréttablaðið gerði sína könnun í gær og í fyrradag. Hringt var í 2216 manns þar til náðist í 1500. 65,1% þerra sem náðist í tók afstöðu til spurningarinnar.
Kosið verður til embættis forseta Íslands á morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









