Ólafur hafnaði í 75. sæti í Georgíu

Ólafur Björn Loftsson Mynd: Myndasíða Golfsambands Íslands

Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson hafnaði í 75. sæti af 90 keppendum á sterku áhugamannamóti í golfi sem fram fór í Ocean Forest vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer ár hvert en leiknir voru þrír hringir.

Ólafur lék lokahringinn á 80 höggum eða átta höggum yfir pari og lauk leik á samtals 24 höggum yfir pari. Bandaríkjamaðurinn Justin Thomas bar sigur úr býtum á mótinu en hann lék samtals á pari.

Ólafur, sem er 24 gamall, er nú á lokaári sínu í Charlotte-háskólanum í Bandaríkjunum og stefnir á að gerast atvinnumaður í golfi að námi loknu. Hann varð í fyrra fyrsti íslenski kylfingurinn til að leika á PGA-mótaröðinni í golfi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Golf, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku