Noriega úr fangelsi á sjúkrahús

Manuel Noriega.

Manuel Noriega, fyrrverandi einræðisherra í Panama, var í gær fluttur úr fangaklefa sínum og á sjúkrahús vegna hugsanlegs heilablóðfalls.

Noriega, sem er 77 ára, var í desember framseldur til Panama eftir að hafa setið í fangelsi í Bandaríkjunum og Frakklandi í 22 ár. Í Panama beið hans 20 ára dómur fyrir morð. Hann er bundinn við hjólastól og á erfitt með að tala vegna fyrri heilablóðfalla.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku