Lögreglan nýtur mests trausts

Lögreglan er sú stofnun í þjóðfélaginu sem nýtur mests trausts, samkvæmt nýrri könnun MMR. Bankakerfið nýtur minnsts trausts.
81 prósent aðspurðra segist bera frekar eða mjög mikið traust til Lögreglunnar en aðeins tæp sjö prósent treysta henni frekar eða mjög lítið. 69 prósent treysta Háskóla Íslands mjög eða frekar mikið en sex prósent bera lítið traust til hans. Þá bera 60 prósent frekar eða mjög mikið traust til Ríkisútvarpsins en fjórtán prósent mjög eða frekar lítið traust.
Bankakerfið nýtur minnsts trausts meðal almennings. þrír af hverjum fjórum segjast bera mjög eða frekar lítið traust til bankanna en aðeins sex prósent bera frekar eða mjög mikið traust til þeirra. Það er mesta traust sem bankakerfið hefur notið síðan mælingar hófust. Litlu fleiri treysta Fjármálaeftirlitinu eða átta prósent en 64 prósent vantreysta því.
Fjórtán prósent segjast treysta ríkisstjórninni, örlítið færri stjórnarandstöðunni og tæp ellefu prósent treysta Alþingi. Evrópusambandið nýtur hins vegar trausts um nítján prósenta aðspurðra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Fleiri treysta Ríkisútvarpinu





