Leyniþjónustumaður forsætisráðherra
Fyrst birt: 06.02.2012 22:11, Síðast uppfært: 06.02.2012 22:11

Mihai Razvan Ungureanu, hinn nýskipaðu forsætisráðherra Rúmeníu. Mynd: Nordic Photos/AFP
Forseti Rúmeníu hefur skipað Mihai Razvan Ungureanu, yfirmann leyniþjónustu landsins, í embætti forsætisráðherra.
Skipunin tekur ekki gildi fyrr en þingið hefur samþykkt hana. Fyrr í dag sagði Emil Bloc af sér embætti forsætisráðherra en hann er gríðarlega óvinsæll um þessar mundir vegna mikils niðurskurðar og skattahækkanna sem ríkisstjórn hans stóð fyrir.
Stjórnin lækkaði laun opinberra starfsmanna um 25% og hækkaði virðisaukaskatt um tæpan fjórðung.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







