Leyfir hjónabönd samkynhneigðra

Mynd: Shutterstock

Ríkisstjóri Washington fylkis, Christine Gregoire, tilkynnti í gær að á mánudag muni hún undirrita lög sem leyfi samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Washington verður þar með sjöunda ríki Bandaríkjanna til að leyfa hjónabönd samkynhneigðra.

Frumvarpið var samþykkt í fulltrúaþinginu á miðvikudag með fimmtíu og fimm atkvæðum gegn fjörutíu og þremur. Þrátt fyrir að ríkisstjórinn ætli að staðfesta lögin fljótt munu samkynhneigðir í fylkinu þó ekki geta gift sig fyrr en frá og með júní.

Andstæðingar laganna hafa lýst því yfir að þeir muni krefjast ógildingar á þeim, með atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum í nóvember, en þeir geta hafið undirskriftasöfnun þar að lútandi um leið og búið er að undirrita lögin.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku