Komast ekki að á dýrum lyfjum

Mynd:Shutterstock
Gísli Páll Pálsson, forstjóri og formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, segir í blaðagrein í Morgunblaðinu um helgina að gengið sé framhjá öldruðum sem notast við dýr lyf þegar valið er inn á hjúkrunarheimili.
Í viðtali við blaðið í dag segist velferðarráðherra kannast við þessa umræðu en sér hafi ekki borist neinar kvartanir.
Gísli Páll fullyrðir að ein sparnaðarleið hjúkrunarheimila sé sú að þegar nýir heimilismenn eru valdir inn þá sé lyfjanotkun þeirra skoðuð sérstaklega. Daggjald Tryggingastofnunar Ríkisins tl hjúkrunarheimilanna dugi ekki fyrir launum, umönnun, fæði og lyfjum þegar lyf einstaklings kosti jafnvel mörghundruð þúsund krónur á mánuði.
Gísli Páll segir að þegar lyfjakostnaður slagi kannski upp í 4-500 þúsund á mánuði og daggjaldið sé 600 þúsund, þá sé óneitanlega tilhneiging til þess að menn skoði það áður en þeir tak. einstaklinga inn á heimili, að viðkomandi eigi minni möguleika heldur en annar sem noti miklu ódýrari lyf eða engin lyf.
Í flestum tilfellum sé þetta fólk á sjúkrahúsum þar sem ríkið þurfi hvort sem er að greiða lyfjakostnaðinn. Gísli Páll segir að velferðaráðuneytið viti af þessum vanda, hann hafi til dæmis verið ræddur þar á fundi í maí í fyrra. Á þeim fundi, sem fulltrúar samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hafi átt með ráðuneytinu, hafi verið samþykkt að leggja fram minnisblað til ráðherra um málið og möguleika á lausn á því. Það sé ekki komin nein lausn ennþá.
Sjúkratryggingar Íslands hafi svo í nóvember lagt til lausn á málinu, með breytingu á reglugerð um daggjöld. Svarbréf við því hafi borist frá ráðuneytinu, sem er mjög sérstakt, en þar sé tekið undir þá skoðun að þetta sé vandamál.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, að verið sé að taka á málinu í tengslum við lyfjafrumvarpið sem velferðarnefnd hafi til umræðu. Guðbjartur segir að ef forstöðumenn hjúkrunarheimila flokki fólk niður með þessum hætti lýsi það algjöru siðleysi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







