Kerfið byggðist á braski

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, í Kastljóssviðtali í kvöld.

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi stjórnarformaður Lífeyissjóðs starfsmanna ríkisins, segir lífeyrissjóðakerfið hafa verið byggt á braski. Hann neitar því að ólögleg háttsemi hafi verið viðhöfð innan sjóðanna. Krafan um hámarkaðsarðsemi hafi leitt til brasks.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins tapaði rúmum 100 milljörðum króna í kjölfar hrunsins, samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna.

Ögmundur Jónasson sat lengi í stjórn Lífeyrissjóðsins, meðal annars sem stjórnarformaður. Hann var gestur Kastljósins í kvöld þar sem hann var spurður um viðskipti sjóðsins með bréf í FL group sem hafa vakið upp spurningar í kjölfar útkomu skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Ögmundur svaraði því til að að sjálfsögðu hefðu lífeyrissjóðirnir verið að braska. Allt kerfið hafi verið á því, á því hefði það byggst. Lífeyrissjóðakerfið byggðist á braski.

Hann sagði að sú þróun hefði hafist þegar sjóðnum hefði verið gert, gagnstætt því sem áður var, að leita eftir hámarksávöxtun á markaði. Spurður um ábyrgð hans sem stjórnarmanns á sjóðnum, svaraði Ögmundur:

„Það hefur verið ævistarf mitt að berjast gegn þeirri hugsun sem menn hafa innleitt á Íslandi á undanförnum árum og áratugum.“

Spurningunni um hvort hann beri þá ekki ábyrgð á tapi sjóðsins, svarar Ögmundur:

„Að sjálfsögðu er ekki hægt að tala um það með þeim hætti, nei.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku