Kaup Landsbankans á Verdis skoðuð

Landsbankinn. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.


  • Prenta
  • Senda frétt

Samkeppniseftirlitið ætlar að taka að nýju til athugunar kaup Landsbankans á eignarhlut í fyrirtækinu Verdis. Verdis var áður Arion verðbréfavarsla. Segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að skoða beri hvort unnt sé að setja samrunanum einhver skilyrði.

Samkeppniseftirlitið hafði áður ógilt kaup Landsbankans á hlut í Verdis, og taldi samrunann raska samkeppni á markaði fyrir verðbréfaumsýslu með alvarlegum hætti. Ákvörðunin var kærð og 16. febrúar ógilti áfrýjunarnefnd samkeppnismála hana. Áfrýjunarnefndin hefur lagt fyrir Samkeppniseftirlitið að veita áfrýjendum stuttan frest til að setja fram tillögur um skilyrði fyrir samrunanum, og því er málið tekið aftur til meðferðar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku