Ísak kominn á land

Ísak undir kvöld í gær. Mynd:AFP/NOAA
Lægðarmiðja fellibylsins Ísaks kom á land í suðaustur Louisiana í nótt og stefnir á borgina New Orleans.
Ísak náði síðdegis í gær styrk fyrsta stigs fellibyls og sótti eftir það enn í sig veðrið. Vindstyrkurinn mælist 36 metrar á sekúndu og samgöngur liggja að mestu leyti niðri á stóru svæði. Gífurlegt úrhelli fylgir óveðrinu. Borgarstjóri New Orleans segir að borgarbúar megi búast við 40 sentimetra úrkomu. Þeir hafa þó mestar áhyggjur af hárri sjávarstöðu en borgaryfirvöld segjast fullviss um að flóðgarðar borgarinnar muni standast álagið. Bandaríska fellibyljamiðstöðin varaði í nótt við flóðum meðfram suðurströndinni. Áhlaðandinn við Louisiana, Mississippi og Flórída næði sums staðar næstum þremur metrum. Lægðarmiðjan er nú innan við 100 kílómetra suðsuðaustur af New Orleans og reiknað er með að hún fari yfir borgina í dag réttum 7 árum eftir fellibylurinn Katrín olli þar gífurlegri eyðileggingu og um 1800 borgarbúar fórust.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













