ÍR varð í 20. sæti á Spáni
Fyrst birt: 06.02.2012 23:03, Síðast uppfært: 06.02.2012 23:03

Lið ÍR
Lið ÍR varð í 20. sæti af 21 liði í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupum í Castellón á Spáni í gær.
Lið ÍR skipuðu þeir Þorbergur Ingi Jónsson, Tómas Zoega, Arnar Pétursson og Reynir Bjarni Egilsson en hlaupnir voru tæpir 10 kílómetrar. Þorbergur hljóp vegalengdina á 30:48 mínútum og varð í 61. sæti en hann var einungis 15 sekúndum frá 45. sætinu. Tómas varð í 98. sæti á 32:56 mínútum, Arnar kom í mark á 33:04 mínútum og varð í 99. sæti en Reynir hljóp á 33:46 mínútum og varð í 105. sæti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







