Örlagasaga Fjólu Steinsdóttur

Ótrúleg saga konu sem hefur reynt meira en margur.

Í Samfélaginu í Nærmynd var sagt frá nýrri bók, Skip mitt braut við Afríkuströnd, sem er örlagasaga Fjólu Steinsdóttur Mileris og fjölskyldu hennar. Fjóla fæddist í torfbæ en eyddi mestum hluta ævinnar í Afríku. 17 ára gömul fylgdi hún Litháanum Vladimir til Bretlands og nokkru síðar til Afríku ásamt þremur börnum þeirra þar sem hún bjó í 45 ár,og missti tvo af þremur sonum. Í þessari bók skráir sonarsonur Fjólu - Georg Davíð Mileris þetta ævintýralega líf og hann kom í heimsókn í Samfélagið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku