Hornstrandatófur slá í gegn



  • Prenta
  • Senda frétt

Í vefriti Discover Wildlife má nú finna glæsilegar myndir af íslensku tófunni sem Orsolya og Erlend Haarberg tóku á Hornströndum í fyrra. En Haarberg-hjónin voru á ferð um Vestfirði til að safna efni um náttúru Íslands í ljósmyndabók fyrir National Geographic sem kom út í haust.

Starfsmenn Melrakkasetursins í Súðvík veittu hjónunum margvíslega aðstoð við myndatökurnar. Í Síðdegisútvarpinu var rætt við Ester Unnsteinsdóttur framkvæmdastjóra setursins sem sagði það kosta mikla þolinmæði að mynda tófurnar. Myndirnar má sjá vefsíðunni www.melrakki.is.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku