HK í efsta sæti eftir sigur í kvöld
Fyrst birt: 07.02.2012 22:08, Síðast uppfært: 07.02.2012 22:10

Þróttarar biðu lægri hlut fyrir HK á heimavelli í kvöld
HK komst í efsta sæti 1. deildar karla í blaki með sigri á Þrótti úr Reykjavík á útivelli í kvöld.
Þróttur vann fyrstu hrinu 25-22 en HK næstu þrjár 25-13, 25-20 og 25-16 og þar með leikinn 3-1. Einar Sigurðsson skoraði 19 stig fyrir HK en þeir Alexander Stefánsson og Brynjar Pétursson 16 stig. Fannar Grétarsson var stigahæstur með 15 stig fyrir Þrótt en Andris Orlovs skoraði 12 stig og Guðmundur P. Guðmundsson 11 stig.
HK er nú efst í deildinni með 16 stig, stigi á undan Stjörnunni sem er í öðru sæti með 15 stig. Þróttur Reykjavík er í þriðja sæti með 11 stig en KA á botninum með 2 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







