Hester svarar fyrir sig

Stephen Hester, forstjóri Royal Bank of Scotland, segist ekki vita hversu miklum skaða bankinn hafi orðið fyrir vegna umræðu um laun sín og bónusa.

Bónusgreiðslur til forstjórans ollu mikilli reiði í Bretlandi og varð það til þess að Hester afsalaði sér bónusgreiðslum að andvirði 187 milljóna króna. Sá bónus átti að bætast ofan á 233 milljóna króna laun hans. Hester hefur haldið sig til hlés í umræðunni en sendi starfsmönnum bankans skilaboð vegna málsins. Þar sagði hann deilur um launakjör stjórnenda hafa verið persónugerð í sér og forvera sínum. Sú umræða hefði verið erfið, svo ekki sé sterkar tekið til orða. Hins vegar væri besta leiðin til að svara gagnrýnendum sú að ná betri árangri en þeir ættu von á.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku