Heimsmarkaðsverð hráolíu hækkar
Fyrst birt: 20.02.2012 13:44, Síðast uppfært: 20.02.2012 13:44

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað töluvert það sem af er degi.
Verð á tunnu af Norðursjávarolíu náði í dag 120 dollurum og 72 sentum og hefur ekki verið hærra síðastliðna níu mánuði. Tunna af léttri hráolíu kostar rúmlega 105 dollara á markaði í New York. Ástæða verðhækkunarinnar að er að þessu sinni einkum rakin til þess að Íranar hafa ákveðið að hætta að selja Bretum og Frökkum olíu. Þá er talið að samkomulag um neyðarlán til Grikkja hafi einnig áhrif á verðið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













