Hætt við áform um heilaþvott

Mótmæli í Hong Kong. Mynd: AFP.
Yfirvöld í Hong Kong eru hætt við að skylda öll skólabörn til að sitja tíma í kínverskri þjóðernishyggju. Áformunum hefur verið mótmælt af hörku í rúma viku.
Ekki hefur verið hætt alveg við fagið því ákveðið hefur verið að skólar fái að ráða því hvort boðið verði upp á það. Gagnrýnendur segja að með námskeiðinu eigi að heilaþvo börn með áróðri frá kínversku ríkisstjórninni. Óánægja með stjórnvöld í Peking hefur aukist undanfarið í Hong Kong og margir eru orðnir langþreyttir eftir lýðræðisumbótum. Mótmælin síðustu daga bera óánægjunni merki.
Yfirvöld í Hong Kong segja að markmiðið með því að skylda alla nemendur til að tileinka sér kínverska þjóðerniskennd hafi verið að vinna gegn þessari þróun og rækta þjóðernislega samkennd, en Hong Kong er kínverskt sjálfstjórnarsvæði.
Athygli hefur vakið hve kröftug mótmælin hafa verið, þúsundir hafa komið saman við skrifstofur ríkisstjórnarinnar og sumir hafa farið í hungurverkfall. Skipuleggjendur mótmælanna segja að meira en hundrað þúsund hafi mótmælt áformunum í gærkvöld.
Á morgun fara fram þingkosningar í Hong Kong þar sem kosið verður um meira en helming þingsæta. Tímasetning tilkynningar yfirvalda um að hætt hafi verið við skyldunámskeiðið þykir benda til þess að ráðamenn hafi orðið hræddir um að óánægjan hefði áhrif á niðurstöður kosninganna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














