Gistir fangaklefa að eigin ósk

Ungur maður var fluttur á lögreglustöð á öðrum tímanum í nótt eftir að hann lenti í átökum við dyraverði á árshátíð, sem haldin var í austurborginni.

 Á stöðinni neitaði hann alfarið að gefa upp nafn og var þá stungið í fangaklefa. Skömmu síðar kom kona hans til að sækja hann. Þá neitaði maðurinn  að yfirgefa klefann. Hann gistir þar enn en gera á aðra tilraun til að koma honum heim með morgninum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku