Gasleiðsla sprengd á Sínaí-skaga
Fyrst birt: 05.02.2012 03:24, Síðast uppfært: 05.02.2012 03:24

Útflutningur á jarðgasi frá Egyftalandi til Ísraels og Jórdaníu liggur niðri eftir að gasleiðsla þangað var sprengd í nótt norðarlega á Síaní-skaga.
Þetta er í 12. sinn sem gasleiðslan er sprengd frá því að Mubarak, fyrrverandi Egyftlandsforseti, var hrakinn frá völdum. Viðgerð hefur stundum tekið margar vikur. Mubarak gerði á sínum tíma samning til 20 ára um gassöluna til Ísraels en margir Egyftar eru margir óánægðir með samninginn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







