Föt á börnin keypt í útlöndum
Fyrst birt: 30.01.2012 21:08, Síðast uppfært: 30.01.2012 21:59

Íslendingar kaupa þriðjung fatnaðar síns í útlöndum. Þetta kemur fram í könnun Capacent fyrir Samtök verslunar og þjónustu. Hæst er hlutfallið í barnafötum.
Þegar spurt var í nóvember og desember hvar fólk hefði keypt barnaföt síðast þá sögðustu tæp 42 prósent hafa keypt barnaföt síðast í útlöndum. Af þeim höfðu 62 prósent keypt barnafötin í verslunum HogM. Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu sagði í Kastljósi í kvöld að HogM hefði því fjórðungs markaðshlutdeild hér á landi og hann gæti ekki ímyndað sér að nokkur annar hefði eins háa markaðshlutdeild hér á landi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







