Forsetakosningar í Finnlandi

Finnar kjósa sér forseta í dag í seinni umferð forsetakosninganna. Kosið er á milli Sauli Niinistö, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingforseta, og Pekka Haavisto, frambjóðanda Græningja.

Talið er víst að Niinistö verði kosinn en hann fékk langflest atkvæði í fyrri umferðinni. Búist er við góðri kjörsókn þrátt fyrir fimbulkulda frostið fer allt niður í 40 stig. Yfir 36% kjósenda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar. Niinistö er frambjóðandi Samstöðuflokksins, sem er hægri flokkur. Verði hann kosinn verður hann fyrsti forsetinn, sem ekki er úr flokki Jafnaðarmanna, frá því að Urho Kekkonen lét af embætti fyrir rúmum 30 árum eftir 25 ár á forsetastóli.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku