Farþegarnir komnir inn í flugstöð
Fyrst birt: 07.02.2012 21:13, Síðast uppfært: 07.02.2012 21:36

Allir farþegar Icelandair, á sjötta hundrað, sem sátu fastir í flugvélum félagsins á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag og í kvöld vegna veðurs eru nú komnir inn í Leifsstöð.
Þá höfðu þeir setið í hátt í 4 klukkustundir inni í vélunum. Flugvélum félagsins á leið til Bandaríkjanna seinkaði því í kvöld sem því nemur.
Öllu flugi innanlands var aflýst í dag vegna stormsins. Einar Magnús Einarsson veðurfræðingur sagði í fréttum Sjónvarpsins klukkan sjö að búast mætti við því að versta veðrið færi nú að ganga niður. Mjög hvasst hefur verið víða um land í dag, sérstaklega á Snæfellsnesi nú í kvöld.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







