Capello ósáttur við ákvörðun FA

Ítalinn Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, er ósáttur við ákvörðun enska knattspyrnusambandsins að svipta John Terry fyrirliðabandinu.

Terry sætir nú lögreglurannsókn vegna meints kynþáttaníðs á knattspyrnuvellinum en Capello sagði við ítalska ríkissjónvarpið í gær að hann teldi að ekkert ætti að gera í málinu fyrr en rannsókninni væri lokið. Enska sambandið tók fram fyrir hendurnar á Capello fyrir helgi og svipti Terry fyrirliðastöðunni en ítalski landsliðsþjálfarinn hefði kosið að leikmaðurinn gegndi stöðunni fram yfir Evrópumótið í sumar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku