Blæddi úr slagæð eftir árás á bar

Landspítalinn í Fossvogi.


  • Prenta
  • Senda frétt

Um klukkan hálf eitt í nótt kom tæplega fimmtugur karlmaður á slysadeild Landspítalans vegna blæðingar úr slagæð á höfði. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði maðurinn verið á bar á Laugavegi og fengið þar glas í höfuðið. Sauma þurfti sextán spor.

Dyraverðir urðu vitni að árásinni og er málið í rannsókn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku