BL nýtt nafn á bílaumboði

Nafni bílaumboðanna Ingvars Helgasonar og B&L hefur frá og með deginum í dag verið breytt í BL ehf.

Í tilkynningu frá félaginu segir að með nýju nafni ljúki sameiningarferli fyrirtækjanna. Nú hefjist nýr kafli í sögu fyrirtækisins eftir samdráttarskeið undanfarinna ára. Nýir eigendur, Erna Gísladóttir og Jón Þór Gunnarsson tóku við rekstri bílaumboðsins um áramótin.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Viðskipti

Tilkynna um bilaða upptöku