Aldrei séð mynd með Russell Crowe

Nökkvi Helgason, 14 ára, mætti í prufu á hjá Eskimo fyrir hlutverk í kvikmyndinni Noah
Fjöldi fólks hefur haft samband á skrifstofu Eskimo umboðsstofunnar vegna möguleika á hlutverki í kvikmyndinni Noah. Auglýst var eftir strákum á aldrinum 8-14 ára til að leika Biblíu-persónuna Nóa á sínum yngri árum, en með hlutverk hins fullorðna Nóa fer sem kunnugt er Russell Crowe.
Prufur fyrir hlutverkið hófust í dag en einnig verður hægt að spreyta sig á morgun milli klukkan 16 og 18.
Nökkvi Helgason er einn þeirra sem mætti í prufu á á skrifstofu Eskimo í Skúlatúni í dag en hann segir að mamma hans hafi heyrt auglýsingu frá Eskimo í útvarpinu og látið sig vita. Nökkvi telur sig ekki líkjast Russell Crowe neitt mikið en hefur brennandi áhuga á leiklist og lék hlutverk Flóka í kvikmyndinni Sumarlandið fyrir þremur árum.
Þá hefur hann leikið í einni stuttmynd og er einmitt að fara að leika í annarri í byrjun næsta mánaðar. Hann verður þó ekki of upptekinn til að leika í Noah ef hann hreppir hlutverk í myndinni.
Og Nökkvi hikar ekkert þótt myndin verði leikin á ensku. „Jájá, ég gæti alveg gert það, ef ég fengi textann í handriti og gæti undirbúið mig.“
Hann sér gott tækifæri í að koma sér á framfæri í leiklistinni með því að sækja um hlutverk í myndinni; það að Hollywood stjarnan Russell Crowe leiki aðalhlutverkið er algjört aukaatriði fyrir Nökkva.
„Ég hef nú bara aldrei heyrt þetta nafn, ég er ekkert sérlega góður í að muna nöfn á leikurum og söngvurum. Og ég held að ég hafi ekki séð neina mynd með honum. Ég ætlaði alltaf að sjá Robin Hood en hef ekki gert það ennþá.“
Eskimo leitar einnig að sérstaklega grönnu fólki og 1-3 mánaða gömlum ungabörnum fyrir kvikmyndina, sem bandaríski leikstjórinn Darren Aronofsky ætlar að gera á Íslandi síðar í sumar.

Nökkvi að fylla út umsókn fyrir hlutverkið, ásamt Eysteini Aroni Halldórssyni sem var vini sínum til halds og trausts.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














