Afneitar boðsferðum

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga.
Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga, neitar því eindregið að starfsmenn sjóðanna hafi þegið boðsferðir á vegum fyrirtæka sem voru að kynna starfsemi sína erlendis.
Haukur var gestur í Kastljósi RÚV í kvöld. Þar var hann meðal annars krafinn sagna um boðsferðir starfsfólksins á liðnum árum, einkum í ljósi þess að samkvæmt starfsreglum máttu þeir hvorki þiggja boðsferðir né gjafir. Haukur kvað engar boðsferðir hafa verið þegnar.
„Hins vegar hefur það verið þannig,“ sagði Haukur, „að þegar fyrirtæki voru að kynna starfsemi sína var það alltaf matsatriði hvort fyrirtækin ættu að standa straum af kostnaði við kynninguna eða hvort taka ætti af fé sjóðfélaga í lífeyrissjóðunum til að greiða kostnaðinn.“
Í skýrslunni um lífeyrsissjóðina voru gerðar athugasemdir við nokkrar ferðir sem starfsmenn sjóðanna fóru þar sem fyrirtæki greiddu kostnaðinn. Haukur segir að á þeim tíma hafi það verið metið svo að eðlilegt væri að fyrirtækin stæðu straum af kostnaði við kynninguna.
„Starfsmennirnir sem fóru þessar ferðir voru ekki að þiggja nein boð,“ segir Haukur. „Þeir voru að fara í vinnuferð og höfðu enga fjárhagslega hagsmuni af því hvort fyrirtæki sem var að kynna starfsemi sína borgaði kostnaðinn eða lífeyrissjóðurinn.“
Haukur var inntur eftir því hvort hann túlkaði það virkilega sem svo að ekki væri um boðsferð að ræða þegar starfsmenn lífeyrissjóðanna færu í utanlandsferðir á kostnað banka sem hefði mikla hagsmuni af því að nálgast fé í lífeyrissjóðunum.
„Nei, svaraði Haukur Hafsteinsson, „við lítum ekki á það sem boðsferð.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







