9 ára snáði vísaði óvart á vopnabúr

Flokkar: Erlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Lögregla fann gríðarmikið vopnabúr í húsi einu í Hermosillo í Norður-Mexíkó í gær eftir að níu ára sonur húsráðanda mætti með hlaðna skammbyssu í skólann.

Snáðinn var drjúgur með sig og sýndi bekkjarbræðrum sínum byssuna, einhver þeirra lét kennarann vita og hann hringdi í lögregluna.

Heima hjá drengnum fundust skotvopn, skotfæri og fleira, búnaður til að vopna heila herdeild. Þannig lá AR15 hríðskotariffill á borðstofuborðinu, annar inn í svefnherbergi. Fjöldi riffla og skammbyssna var í húsinu, skotfæri, skotheld vesti, herbúningar, fjarskiptabúnaður og þrjár bifreiðar, tvær þeirra brynvarðar.

Lögregla handtók konu á staðnum, móður drengsins, en heimilisföðurnum tókst að flýja. Talið er að heimilið hafi verið miðstöð og vopnabúr samtaka fíkniefnasmyglara.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku