7 létust í jarðskjálfta
Fyrst birt: 06.02.2012 10:08, Síðast uppfært: 06.02.2012 11:01

Dumaguete-borg, Filippseyjum. Mynd: Google Maps.
Að minnsta kosti sjö létu lífið þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,8 reið yfir undan strönd Filippseyja í morgun. Mikil hræðsla greip um sig í borgum þar sem hús hristust og sveifluðust til.
Auk þess fór orðrómur á kreik um að risastór flóðbylgja stefndi að landi. Flóðbylgjuviðvörunarstofnun Kyrrahafsins segir þó ekki hættu á stórri flóðbylgju. Skjálftinn olli því meðal annars að sprungur mynduðust á vegum, brýr skemmdust og truflanir urðu á rafmagni.
Upptök skjálftans voru um 70 kílómetrum norður af borginni Dumaguete á Negros-eyju.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku







