Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Við fjölluðum um vegina í landinu og ástand þeirra. Það er ekki gott, á heildina litið. Það þekkja vegfarendur.
Umferðin hefur aukist stórkostlega en viðhaldið er ekki í nokkru samræmi við hana. Samtök iðnaðarins áætla að um 170 milljarða króna viðhaldsskuld hafi safnast upp á umliðnum árum. Jóhanna Klara Stefánsdóttir sem stýrir mannvirkjasviðinu þar á bæ var gestur okkar.
Hlutur ferðaþjónustunnar í landsframleiðslu hefur aldrei verið stærri en í fyrra. Störfum fjölgaði og heildarneysla ferðamanna hefur aldrei verið meiri. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, fór yfir þetta. Hann ræddi líka við okkur um uppbyggingu hótela á Norðurlandi og um takmarkanir á komur ferðamanna, sem verið er að grípa til bæði hérlendis og á vinsælum stöðum úti í heimi.
Svo fórum við í bíó. Í huganum. Á ferð með mömmu hlaut níu verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni um síðustu helgi. Við slógum á þráðinn til Hilmars Oddssonar leikstjóra, hann er á ferð um Austur-Evrópu með Á ferð með mömmu, við spjölluðum um myndina góðu og líf kvikmyndaleikstjórans.
Tónlist:
Hljómar - Er hann birtist.
Güra, Werner, Jarnot, Konrad, Radicke, Camillo, Berner, Christoph, Vondung, Anke, Petersen, Marlis - Spanische Liebeslieder op. 138 erste Abteilung : No. 1. Vorspiel.
Jarnot, Konrad, Berner, Christoph, Vondung, Anke, Petersen, Marlis, Güra, Werner, Radicke, Camillo - Spanische Liebeslieder op. 138 erste Abteilung : No. 2. Lied : Tief im Herzen tr.
Jarnot, Konrad, Güra, Werner, Berner, Christoph, Radicke, Camillo, Vondung, Anke, Petersen, Marlis - Spanische Liebeslieder op. 138 erste Abteilung : No. 3. Lied : O wie lieblich da.
Güra, Werner, Radicke, Camillo, Jarnot, Konrad, Berner, Christoph, Vondung, Anke, Petersen, Marlis - Spanische Liebeslieder op. 138 erste Abteilung : No. 4. Duett : Bedeckt mich mit.
Skriðjöklar - Bíllinn minn og ég.
Top pops - Mamy blue.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Fjórði þáttur um sögu Páskaeyju á Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir útlendinga til að gera eyjuna að stóru sauðfjárbúi og endalok sjálfstæðis eyjaskeggja í lok nítjándu aldar.
Þáttarmynd: ljósmyndir af Páskeyingum, teknar af skipverjum á bandaríska skipinu USS Mohican 1886.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra var föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins að þessu sinni. Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013 fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Hún var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði, kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar og síðar við Menntaskólann á Tröllaskaga. Við fræddumst um rætur Bjarkeyjar, æskuslóðirnar og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag.
Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjall og í dag flettum við í bókinni Unga fólkið og eldhússtörfin og könnuðum hvað má enn læra af bókinni og svo hvað er kannski orðið úrelt.
Tónlist í þættinum
Nei eða já / Stjórnin (Grétar Örvarsson, Friðrik Karlsson og Stefán Hilmarsson)
Eltu mig uppi / Sálin hans Jóns míns (Guðmundur Jónsson og Stefán Hilmarsson)
Sóley / Björgvin Halldórsson og Katla María (Gunnar Þórðarson og Sigrún Toby Herman)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bandarískir embættismenn segja Ísrael hafa gert árás á Íran í nótt. Hvorki ísraelsk né írönsk stjórnvöld hafa staðfest þetta. Samkvæmt írönskum miðlum skaut loftvarnarkerfi Írans niður þrjá dróna yfir borginni Isfahan. G7-ríkin vara við að ástandið í Mið-Austurlöndum fari úr böndunum.
Sex milljónir rúmmetra af kviku eru í kvikuhólfinu undir Svartsengi en á sama tíma dregur hægt og rólega úr yfirstandandi gosi. Líkur aukast á að það gjósi á nýjum stað.
29 nautgripir fundust dauðir og aflífa þurfti um 40 til viðbótar vegna vanrækslu á bóndabæ á Norðulandi vestra. MAST segir þetta stærsta mál sem upp hefur komið tengt nautgripum,
Fjármálaráðherra segir það miður að afgreiðsla á kaup á eignum Grindvíkinga hafi dregist á langinn. Hann gerir ráð fyrir að hraðar gangi á næstu dögum.
Kíghósti hefur fengið útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu, sex tilfelli hafa greinst.
Vegagerðin reiknar með að geta hafið samtal við verktaka um lagningu Sundabrautar í byrjun næsta árs. Jarðvegsransóknir vegna hugsanlegrar brúar eða ganga undir Kleppsvík ganga vonum framar.
Áhrif loftslaghlýnunar á kolefnislosun úr jarðvegi á nyrstu gróðurbeltum jarðar eru fjórum sinnum meiri en áður var talið. Þetta er niðurstaða áratuga rannsóknar sem birt var í Nature og var meðal annars gerð á Íslandi.
Íbúar í grennd við vinsæla ferðamannastaði á suðausturlandi og hafnir sem taka á móti mörgum skemmtiferðaskipum eru líklegastir til að finnast ferðamenn vera of margir. Á stöðum eins og Akranesi og sunnanverðum vestfjörðum vilja íbúar hinsvegar fá fleiri ferðamenn.
Líklegast er að íbúum í grennd við vinsæla ferðamannastaði á Suðausturlandi og hafnir þar sem mörg skemmtiferðaskip koma að, finnist ferðamenn of margir. Á stöðum eins og Akranesi og sunnanverðum Vestfjörðum vilja íbúar hinsvegar fá fleiri ferðamenn.
Anna Kristín Jónsdóttir segir hádegisfréttir.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Okkur líkar vel við skoðanakannanir. Þær segja okkur hver við erum, hvað okkur finnst, hvað við viljum og hvað við viljum ekki. Og nú koma þær á færibandi. Við erum að fara að kjósa okkur nýjan forseta og fylgi stjórnmálaflokkanna er sannarlega teygjanlegt hugtak. En hvert er hlutverk þessarra kannanna í raun og veru? Hafa þær áhrif? Eru þær marktækar? Við þessum spurningum eru ekki til einföld svör, eins og Agnar Freyr Helgason stjórnmálafræðingur ræðir við Sunnu Valgerðardóttur í þætti dagsins.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, hvort sem það er hús, köttur eða gangstéttarhella vekur hjá þeim.Við ræðum við þau Ólaf Rastrick, prófessor í þjóðfræði og Snjólaugu Guðrúnu Jóhannesdóttur, doktorsnema.
Við heyrum líka málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti, hún fjallar um einmitt, nákvæmlega og nefnilega.
Svo ætlar Vera Illugadóttir að heiðra okkur með nærveru sinni. Umfjöllunarefni hennar er, sem fyrr, dýr og sérstaklega dýr sem hafa valdið spellvirkjum og jafnvel þurft að svara til saka fyrir óknytti.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-19
Massi, Souad - Hayati.
Lebrijano, Juan Pena - Amigo mio, no.
Belahcène, Nouba, Remitti, Cheikha, Nedromi, Cheikh, Hamnache, Muhamed, Medjahri, Abdelkader - Bakhta.
Nhoré, Jeff - Afara koa tsy atao = We won't do it again in the future.
Waaberi, Daher, Kadra - Hafun = Soft.
Abot, Jojo - To Li.
Pacheco, Cayetano - Mi dulce soledad.
Pelaia, Alfredo - Chinita.
Iriarte, Rafael, Pesoa, Rosendo - Vamos pa'l rancho.
Trio Los Nativos - La tabala cayó clavada.
Hasan, Asheq - Love song.
Ensemble Volnitza de Rostov - Ode à Tarass Chevtchenko = Ode to Taras Shevchenko.
Gonashvili, Hamlet - Berikatsi var.
Gonashvili, Hamlet - Chela.
Gyrðir Elíassson segir frá sagnaskáldinu William Saroyan og les eina af smásögum hans í eigin þýðingu. Saroyan var öld í fremstu röð sagnaskálda í Bandaríkjunum á tuttugustu öld. Hann var af armenskum ættum og sótti mjög í þá arfleifð í list sinni. Saroyan er kunnastur af smásagnagerð og hafði mikil áhrif á þá listgrein og má sjá þess merki meðal annars hjá íslenskum höfundum. Einnig samdi hann skáldsögur og er ein þeirra þýdd á íslensku undir nafninu Leikvangur lífsins. Á seinni árum hafa þeir Gyrðir Elíasson og Óskar Árni Óskarsson þýtt nokkuð af smásögum Saroyans og gefið út í bókum.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Plata vikunnar er Feline með Stranglers.
Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Lögin á plötunni:
Hlið 1:
1. Midnight Summer Dream
2. It's a Small World
3. Ships That Pass in the Night
4. European Female (In Celebration of)
Hlið 2:
1. Let's Tango in Paris
2. Paradise
3. All Roads Lead to Rome
4. Blue Sister
5. Never Say Goodbye
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina. Gestir: Haukur Ingvarsson, Hanna Styrmisdóttir og Katrín Lóa Hafsteinsdóttir.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir.
Kvöldfréttir útvarps
Almannavarnir eru komnar í viðbragðsstöðu. Nýtt eldgos gæti hafist á Reykjanesskaga á næstu dögum og vikum. Ekki hefur verið lokið við varnargarða í Grindavík og hluti bæjarins gæti verið í hættu.
Ísraelar stóðu á bak við drónasendingarnar í Íran í nótt. Bandaríkjamenn staðfestu þetta á fundi G7 ríkjanna. Engar skemmdir urðu, en ríkin tvö eru hvött til að láta af þessum víxlárásum.
Heimilislæknar á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins ætla að hætta að sinna eftirliti með sjúklingum sem hafi fengið ávísað of stórum skömmtum ADHD-lyfja. Landlæknir segir að tryggja þurfi að sjúklingar í lyfjameðferð séu undir eftirliti.
Gömul hús og byggingar sem geyma menningarverðmæti hér á landi eru heilt yfir vel búnar brunavörnum, að mati slökkviliðsstjóra.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
ADHD er bæði ofgreint og ofmeðhöndlað hér á landi segir yfirlæknir ADHD-teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Landlæknir segir að á hverjum tíma séu nokkur mál vegna ávísana of stórra skammta ADHD-lyfja til meðferðar hjá embættinu og að misbrestur hafi verið á að næg eftirfylgni sé með slíkum lyfjameðferðum.
Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar hafa í vikunni átt samráðsfundi með íbúum um möguleika á sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Íbúafundir hafa verið haldnir í hverju sveitarfélagi fyrir sig undanfarin þrjú kvöld, þar sem íbúar hafa getað viðrað skoðanir sínar. Ragnhildur Thorlacius fréttamaður ræddi við Gunnar Axel Axelsson sveitarstjóri Voga, sem segir að þessar hugleiðingar séu ekki nýjar af nálinni.
Bandaríska poppstjarnan Taylow Swift gaf í dag út sína elleftu breiðskífu, The Tortured Poets Departmant - aðdáendur Swift verða seint sagðir þurfa bíða lengi eftir nýrri tónlist frá átrúnargoði sínu, hún hefur ofdekrað þá með nýju efni síðustu árin Það er kannski ekki skrýtið að aðrir tónlistarmenn skyldi ranghvolfa augunum þegar hún tilkynnti á grammy í febrúar að von væri á plötunni, þá nýbúin að vinna verðlaun fyrir plötu ársins - þeir vissu að slagurinn væri tapaður og best væri að leyfa henni að eiga sviðið.
Veðurstofa Íslands.
Gyrðir Elíassson segir frá sagnaskáldinu William Saroyan og les eina af smásögum hans í eigin þýðingu. Saroyan var öld í fremstu röð sagnaskálda í Bandaríkjunum á tuttugustu öld. Hann var af armenskum ættum og sótti mjög í þá arfleifð í list sinni. Saroyan er kunnastur af smásagnagerð og hafði mikil áhrif á þá listgrein og má sjá þess merki meðal annars hjá íslenskum höfundum. Einnig samdi hann skáldsögur og er ein þeirra þýdd á íslensku undir nafninu Leikvangur lífsins. Á seinni árum hafa þeir Gyrðir Elíasson og Óskar Árni Óskarsson þýtt nokkuð af smásögum Saroyans og gefið út í bókum.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, hvort sem það er hús, köttur eða gangstéttarhella vekur hjá þeim.Við ræðum við þau Ólaf Rastrick, prófessor í þjóðfræði og Snjólaugu Guðrúnu Jóhannesdóttur, doktorsnema.
Við heyrum líka málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti, hún fjallar um einmitt, nákvæmlega og nefnilega.
Svo ætlar Vera Illugadóttir að heiðra okkur með nærveru sinni. Umfjöllunarefni hennar er, sem fyrr, dýr og sérstaklega dýr sem hafa valdið spellvirkjum og jafnvel þurft að svara til saka fyrir óknytti.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra var föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins að þessu sinni. Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013 fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Hún var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði, kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar og síðar við Menntaskólann á Tröllaskaga. Við fræddumst um rætur Bjarkeyjar, æskuslóðirnar og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag.
Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjall og í dag flettum við í bókinni Unga fólkið og eldhússtörfin og könnuðum hvað má enn læra af bókinni og svo hvað er kannski orðið úrelt.
Tónlist í þættinum
Nei eða já / Stjórnin (Grétar Örvarsson, Friðrik Karlsson og Stefán Hilmarsson)
Eltu mig uppi / Sálin hans Jóns míns (Guðmundur Jónsson og Stefán Hilmarsson)
Sóley / Björgvin Halldórsson og Katla María (Gunnar Þórðarson og Sigrún Toby Herman)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina. Gestir: Haukur Ingvarsson, Hanna Styrmisdóttir og Katrín Lóa Hafsteinsdóttir.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Það var allt í fína í upphafi útvarpsdags þegar Hulda lék ljúfa tóna frá ýmsum tímum og stöðum fyrir hlustendur.
Lagalisti:
Ragnar Bjarnason og Katrín Halldóra - Allt í fína.
The Beatles - The long and winding road.
The Mamas and the Papas - California dreamin'.
Amy Winehouse - Back to black.
Bara Heiða - Stormtrooper.
Hannes og Waterbaby - Stockholmsvy.
Bubbi - Syneta.
KK - Á æðruleysinu.
Etta James - I just want to make love to you.
Elvis Presley - Only fools rush in.
Jónas Sig - Milda hjartað.
Eivör - Ég veit.
John Mayer - Shadow days.
Elvis Costello - She.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Plötubúðadagurinn, eða Record store day uppá enskuna, er haldinn hátíðlegur víða um heim á morgun. únar fór á stúfana í gær og heimsótti Plötubúðina.is sem er í Trönuhrauni í Hafnarfirði og talaði við Harald Leví Gunnarsson, eiganda.
Við fengum til okkar Ástu Sigrúnu Helgadóttur, umboðsmann skuldara og tókum stöðuna.
Í Dubai hefur allt verið á floti vegna úrhellis sem ekki hefur sést í sama mæli í 75 ár. Hávær umræða hefur skapast á miðlunum X og Tiktok um að svokallaðri cloud seeding tækni sé um að kenna. Hvað er cloud seeding og á þessi kenning við rök að styðjast? Elín Björk Jónasar veðurfræðingur ræddi málið við okkur.
Hefur svissnesku ömmunum, hópi eldri kvenna frá Sviss sem unnu tímamótasigur fyrir mannréttindadómstóli Evrópu í síðustu viku breytt loftslagsleiknum? Kári Hólmar Ragnarsson lektor við Lagadeild HÍ fór ofan í saumana á því með okkur. Dómurinn og áhrif hans verða krufin á málstofu Mannréttindastofnunar HÍ í hádeginu í dag.
Við fórum loks yfir fréttir vikunnar með Katrínu Oddsdóttur lögmanni og Grétari Theódórssyni almannatengli.
Tónlist:
BRUNALIÐIÐ - Ég er á leiðinni.
Björgvin Þór Þórarinsson - Lifandi inní mér.
PATRi!K & LUIGI - Skína.
CHRIS REA - The Road To Hell.
THE CRANBERRIES - Dreams.
MAGIC! - Rude.
DAFT PUNK - Lose Yourself To Dance.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það voru funheitir Hjartagosar sem heilsuðu á föstudegi.
Harpa sagði okkur frá bjór plokki og vorhátíð á Vík
Elína Lára Reynisdóttir sagði okkur frá því þegar hún hljóp með Olympíu eldurunum í Grikklandi.
Lagalisti fólksins var fun heitur í dag, þemað var eldur.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-19
BRÆÐRABANDALAGIÐ - Sólarsamba.
BOB MARLEY AND THE WAILERS - Kaya.
GDRN - Þú sagðir.
PRINCE - Kiss.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Klikkað.
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Myndi falla.
HALL&OATES - Kiss On My List.
Kiriyama Family - Disaster.
BRUNALIÐIÐ - Konur.
Stefaína Svavars & Elísabet Ormslev - Adele Syrpan (Beint úr Hjartagosum 18 apríl?24).
ARETHA FRANKLIN - (You Make Me Feel Like) A Natural Woman.
VANGELIS - Chariots Of Fire.
Eleni Foureira - Fuego (Eurovision 2018 Kýpur).
CALEB KUNLE - All in your head.
GusGus - Breaking Down (Radio Edit).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
EVERYTHING BUT THE GIRL - Missing (Todd Terry Club Remix).
McRae, Tate - Greedy.
EGILL ÓLAFSSON & DIDDÚ - Það Brennur.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Neistinn.
Don Omar - Feeling hot.
THE PRODIGY - Firestarter.
Trammps - Disco inferno.
BANGLES - Eternal Flame.
BLOODHOUND GANG - Fire Water Burn.
Hvanndalsbræður - Elddrottningin.
SYCAMORE TREE - Fire.
Scooter - Fire.
ELDFUGLINN - Eldfuglinn.
EARTH WIND AND FIRE - Let's Groove.
Ryan, John, Pitbull - Fireball (radio).
NÝDÖNSK - Alelda.
Eldar - Dropi í hafi.
DEEP PURPLE - Burn.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bandarískir embættismenn segja Ísrael hafa gert árás á Íran í nótt. Hvorki ísraelsk né írönsk stjórnvöld hafa staðfest þetta. Samkvæmt írönskum miðlum skaut loftvarnarkerfi Írans niður þrjá dróna yfir borginni Isfahan. G7-ríkin vara við að ástandið í Mið-Austurlöndum fari úr böndunum.
Sex milljónir rúmmetra af kviku eru í kvikuhólfinu undir Svartsengi en á sama tíma dregur hægt og rólega úr yfirstandandi gosi. Líkur aukast á að það gjósi á nýjum stað.
29 nautgripir fundust dauðir og aflífa þurfti um 40 til viðbótar vegna vanrækslu á bóndabæ á Norðulandi vestra. MAST segir þetta stærsta mál sem upp hefur komið tengt nautgripum,
Fjármálaráðherra segir það miður að afgreiðsla á kaup á eignum Grindvíkinga hafi dregist á langinn. Hann gerir ráð fyrir að hraðar gangi á næstu dögum.
Kíghósti hefur fengið útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu, sex tilfelli hafa greinst.
Vegagerðin reiknar með að geta hafið samtal við verktaka um lagningu Sundabrautar í byrjun næsta árs. Jarðvegsransóknir vegna hugsanlegrar brúar eða ganga undir Kleppsvík ganga vonum framar.
Áhrif loftslaghlýnunar á kolefnislosun úr jarðvegi á nyrstu gróðurbeltum jarðar eru fjórum sinnum meiri en áður var talið. Þetta er niðurstaða áratuga rannsóknar sem birt var í Nature og var meðal annars gerð á Íslandi.
Íbúar í grennd við vinsæla ferðamannastaði á suðausturlandi og hafnir sem taka á móti mörgum skemmtiferðaskipum eru líklegastir til að finnast ferðamenn vera of margir. Á stöðum eins og Akranesi og sunnanverðum vestfjörðum vilja íbúar hinsvegar fá fleiri ferðamenn.
Líklegast er að íbúum í grennd við vinsæla ferðamannastaði á Suðausturlandi og hafnir þar sem mörg skemmtiferðaskip koma að, finnist ferðamenn of margir. Á stöðum eins og Akranesi og sunnanverðum Vestfjörðum vilja íbúar hinsvegar fá fleiri ferðamenn.
Anna Kristín Jónsdóttir segir hádegisfréttir.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Matti og Lovísa stýrðu Popplandi dagsins. Mikill fössari og mikið stuð.
Jóipé x Króli, USSEL - Í Fullri Hreinskilni.
HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt.
CHRISTINE AND THE QUEENS - Tilted.
Cage the Elephant - Neon Pill.
AC/DC - Hells Bells.
DEEE-LITE - Groove is in the heart.
Ngonda, Jalen - Illusions.
Khruangbin - May Ninth.
PRINCE - Cream.
Taylor Swift - Blank Space.
THE CURE - Friday I'm In Love.
Julian Civilian - Tölum saman í september.
MOTION BOYS - Hold Me Closer To Your Heart (album version).
CELESTE - Love Is Back.
Baby Rose, BADBADNOTGOOD - One Last Dance.
Bubbi Morthens - Aldrei Fór Ég Suður.
Myrra Rós Þrastardóttir - Kveldúlfur.
LEON BRIDGES - Beyond.
PRINS PÓLÓ - Læda slæda.
GDRN - Utan þjónustusvæðis (feat Unnsteinn Manuel).
Jelly Roll - Need A Favor.
Beyoncé - Ya Ya (Explicit).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
BSÍ - Lily (hot dog).
Lada Sport - Ólína.
CARIBOU - Home.
BLOODGROUP - Hips Again.
Margeir Ingólfsson, Matthildur - Put a bullet (Radio edit).
Moloko - The Time Is Now.
The Knife - Pass This On.
BENSON BOONE - Beautiful Things.
Mark Ronson and The Business Intl, Q-Tip, MNDR - Bang bang bang.
KALEO - Hey Gringo.
Jónfrí - Draumur um Bronco.
PÁLL ÓSKAR - Stanslaust stuð.
BLOSSI - Sírenur.
DUA LIPA - Training Season.
KELIS - Trick Me.
DAVID BOWIE - Young Americans.
BJÖRGVIN - Lifandi inní mér.
KACEY MUSGRAVES - Cardinal.
UNA TORFA - Yfir strikið.
DJO - End of Beginning.
MAYA HAWKE - Missing Out.
JUNGLE - Back on 74.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Innviðaráðuneytið er langt komið með endurskoðun á samgöngusáttmálanum. Hann var tekinn til endurskoðunar eftir að í ljós kom að útgjöld yrðu umtalsvert hærri en upphaflega stóð til. Engu að síður eru leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna mikið í mun að sáttmálinn verði kláraður. Davíð Þorsteinsson hjá Betri samgöngum kemur til okkar og segir okkur hver staðan er í þessu gríðarstóra samgöngumáli.
Við ætlum að hringja norður á Akureyri í Sigrúnu Steinarsdóttur sem hefur síðustu tíu ár rekið facebook- hópinn Matargjafir á Akureyri og nágrenni. Við höfum áður rætt við Sigrúnu í Síðdegisútvarpinu en starfsemi matargjafanna hefur falið í sér að að láta fólk fá mat sem hefur ekki sjálft tök á að kaupa mat auk þess sem meðlimir hópsins hafa getað sótt um að fá mataraðstoð í formi Bónuskorts. Nú hefur Sigrún ákveðið að hætta með Matargjafir á Akureyri og nágrenni en sú ákvörðun hefur ekki reynst henni auðveld. Við heyrum í Sigrúnu á eftir.
Urðun hefur minnkað eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið hjá Sorpu. Við fáum blaðamanninn Bjartmar Alexandersson á Heimildinni til okkar en hann hefur skrifað mikið um endurvinnslu á Íslandi og hlaut rannsóknarblaðamannverðlaunin fyrir fréttir sínar um meðferð mjólkurferna hér á landi.
Kvikmyndin Einskonar ást var frumsýnd við frábærar undirtektir í Smárabíói síðastliðið miðvikudagskvöld. Myndin. sem er rómantísk gamanmynd í nútímalegri kantinum, varpar ljósi á sífellt flóknara ástarlíf ungmenna í Reykjavík nútímans. Einskonar ást er að fara í almennar sýningar í kvöld og af því tilefni ætlum við að fá til okkar leikstjóra myndarinnar, Sigurð Anton Friðþjófsson og Kristrúnu Kolbrúnardóttur aðalleikkonu myndarinnar.
Hvernig koma golfvellir undan vetrinum og hvenær mega golfarar búast við að komast á flötina? Þetta er spurning sem aðeins iþrótta-valla-yfirborðs-tækni-fræðingar geta svarað. Já, þið heyrðuð rétt, iþrótta-valla-yfirborðs-tækni-fræðingurinn Bjarni Þór Hannesson kemur til okkar og fer yfir golfsumarið og mögulega lengsta starfstitilinn í íslensku máli.
Klassíski krakkadagurinn verður haldinn í Hörpu á morgun og í fyrsta sinn í íslenskri tónlistarsögu, bjóða tvær sinfóníuhljómsveitir upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Sú sem veit allt um málið heitir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri dagskrágerðar hjá Hörpu.
Kvöldfréttir útvarps
Almannavarnir eru komnar í viðbragðsstöðu. Nýtt eldgos gæti hafist á Reykjanesskaga á næstu dögum og vikum. Ekki hefur verið lokið við varnargarða í Grindavík og hluti bæjarins gæti verið í hættu.
Ísraelar stóðu á bak við drónasendingarnar í Íran í nótt. Bandaríkjamenn staðfestu þetta á fundi G7 ríkjanna. Engar skemmdir urðu, en ríkin tvö eru hvött til að láta af þessum víxlárásum.
Heimilislæknar á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins ætla að hætta að sinna eftirliti með sjúklingum sem hafi fengið ávísað of stórum skömmtum ADHD-lyfja. Landlæknir segir að tryggja þurfi að sjúklingar í lyfjameðferð séu undir eftirliti.
Gömul hús og byggingar sem geyma menningarverðmæti hér á landi eru heilt yfir vel búnar brunavörnum, að mati slökkviliðsstjóra.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
ADHD er bæði ofgreint og ofmeðhöndlað hér á landi segir yfirlæknir ADHD-teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Landlæknir segir að á hverjum tíma séu nokkur mál vegna ávísana of stórra skammta ADHD-lyfja til meðferðar hjá embættinu og að misbrestur hafi verið á að næg eftirfylgni sé með slíkum lyfjameðferðum.
Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar hafa í vikunni átt samráðsfundi með íbúum um möguleika á sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Íbúafundir hafa verið haldnir í hverju sveitarfélagi fyrir sig undanfarin þrjú kvöld, þar sem íbúar hafa getað viðrað skoðanir sínar. Ragnhildur Thorlacius fréttamaður ræddi við Gunnar Axel Axelsson sveitarstjóri Voga, sem segir að þessar hugleiðingar séu ekki nýjar af nálinni.
Bandaríska poppstjarnan Taylow Swift gaf í dag út sína elleftu breiðskífu, The Tortured Poets Departmant - aðdáendur Swift verða seint sagðir þurfa bíða lengi eftir nýrri tónlist frá átrúnargoði sínu, hún hefur ofdekrað þá með nýju efni síðustu árin Það er kannski ekki skrýtið að aðrir tónlistarmenn skyldi ranghvolfa augunum þegar hún tilkynnti á grammy í febrúar að von væri á plötunni, þá nýbúin að vinna verðlaun fyrir plötu ársins - þeir vissu að slagurinn væri tapaður og best væri að leyfa henni að eiga sviðið.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á föstudögum er sulta dagsins indie disco.
Fréttastofa RÚV.
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.