Bubbi tók lagið - Myndband



  • Prenta
  • Senda frétt

Hinn eini sanni Bubbi Morthens mætti galvaskur í Virka morgna í dag, vopnaður gítar. Hann sagði frá nýja sjónvarpsþættinum sínum og tók svo að lokum fyrir okkur lagið en myndband af því má sjá hér fyrir ofan.

Bubbi er að fara í loftið með nýjan sjónvarpsþátt á Stöð 2 sem heitir Beint frá býli. Í þættinum eru bændur heimsóttir og slegið er upp tónleikum á heimilum þeirra.

Ekki var hægt að fá Bubba inn í hljóðver án þess að láta hann spila eins og eitt lag og tók hann því fyrir okkur lagið Ballaðan um kirkjuna, sem er enn sem komið er óútgefið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku